DictionaryForMIDs er fjölhæft orðasafn sem hægt er að setja upp með orðasöfnum á flestum heimsins tungumálum. Til dæmis er hægt að setja DictionaryForMIDs upp með Ensk-Spænsku orðasafni samhliða Ensk-Kínversku.

Fyrir utan orðasöfn mismunandi tungumála er hægt að setja upp annarskonar orðasöfn í DictionaryForMIDs, til dæmis orðasöfn með póstnúmerum, símanúmerum, læknisfræðilegum orðum, o.s.frv.

Athugaðu að orðasöfn sem sett eru upp fyrir DictionaryForMIDs gætu heyrt undir mismunandi höfundarrétt. Öll orðasöfnin sem hægt er að sækja á vefsvæðinu eru öllum frjáls til afnota. Nokkur orðasöfn koma með forritinu og enn fleiri má nálgast í orðasafnahluta vefsvæðisins.
